Gingersnap – Umhverfisvænn andlitsskrúbbur
3.160kr.
Mildur andlitsskrúbbur fyrir allar húðgerðir. Skrúbburinn er m.a. gerður úr hrásykri, engifer og dassi af kanil. Hann hreinsar burt dauðar húðfrumur á mildan hátt og skilur eftir góðan raka í húðinni. Gingersnap má einnig nota sem andlitshreinsi.
Gott er að nota Gingersnap 1x til 2x í viku.
Ein pakkning af Gingersnap jafnast á við þrjár 350 ml plastflöskur af hefðbundnum skrúbbi.
Til þess að kubbarnir endist vel er best að geyma þá í íláti þar sem þeir haldast þurrir.
– Cruelty Free
– Vegan
– Án Pálmolíu
Notkun:
– Bleyttu andlitið og nuddaðu Gingersnap varlega yfir andlitið með hringlaga hreyfingum.
– Nuddaðu svo andlitið með fingrunum.
– Skolaðu burt með volgu vatni.
Hentar líka einstaklega vel með fjölnota bómullarskífunum:
-Bleyttu skífuna með volgu vatni og nuddaðu smá af Gingersnap í hana.
-Hreinsaðu svo andlitið með skífunni.
-Skolaðu skífuna með volgu vatni og strjúktu yfir andlitið.
Á lager